Vínarbrauð (úr Gott og Gagnlegt 2)
Hráefni:
- 1 dl volgt vatn
- 2½ tsk þurrger
- 2 msk sykur
- ½ tsk salt
- 50 g smjörlíki eða ½ dl matarolía
- 1 egg
- 3½ dl hveiti
- ½–1 dl hveiti (til að nota yfir deigið í skálinni)
- 2 msk smjörlíki eða 2–3 msk mjólk (til að setja innan í vínarbrauðslengjurnar)
Tillögur að fyllingu
- Epli, eplamauk, rúsínur, rabarbarasulta (eða önnur sulta), kanelsykur, marsipan og súkkulaðibitar.
Aðferð:
- Mælið volgt vatn í skál.
- Setjið ger, sykur, salt, feiti og egg út í skálina og hrærið.
- Setjið 3½ dl af hveiti og hrærið og sláið deigið í skálinni. Stráðið ½ –1 dl af hveiti yfir deigið í skálinni og látið það lyftast á volgum stað í um það bil 10 mínútur. Á meðan er gott að taka til í fyllinguna.
- Hrærið deigið og hnoðið. Skiptið því í tvo jafnstóra hluta sem flattir eru út í aflangar lengjur 15 x 25 cm stórar, hérna duga kraftar skammt heldur er það þolinmæði, þjálfun og lagni sem dugar. Penslið með bræddu smjörlíki eða mjólk.
- Setjið lengjuna á bökunarplötu með bökunarpappír á. Skerið lengjuna í þrjá jafnstóra bita þvert yfir og þrjá skurði upp í hverja hlið á bitunum. Setjið fyllingu á miðjuna langsum, brjótið deigið yfir, fallegt er að láta deigendana skarast.
- Penslið yfir með mjólk eða eggjablöndu og strá söxuðum möndlum eða hnetum yfir.
- Setjið plötuna í kaldan ofninn og stillið á 200 gráður. Baksturinn tekur um það bil 20 mín.