Súpa með grænmeti og tortellini

Hráefni:

  • 80 g hvítkál
  • ½ stk laukur
  • 1 stk sellerístöngull
  • 2-3 stk kartöflur
  • 1-2 stk tómatar
  • 25 g beikon (pura skorin frá)
  • 1 msk matarolía
  • 1 stk hvítlauksgeiri
  • 1 lítri vatn
  • 1 dós saxaðir tómatar
  • 2 msk tómatþykkni
  • 1 tsk basilkrydd
  • ½ -1 pk tortellini
  • 1 msk steinselja
  • salt, pipar og kjúklingakraftur
  • 2 msk rifinn ostur

Aðferð:

  1. Rífið hvítkálið og saxið grænmetið ásamt beikoni.
  2. Hitið olíuna í potti, steikið grænmetið og beikonið. Gætið þess að þetta brúnist ekki.
  3. Hellið vatni, niðursoðnum tómötum og tómatþykkni út í pottinn og hitið að suðu.
  4. Bætið þá hvítkáli, kartöflum, tómötum basil og tortellini út í.
  5. Sjóðið rólega í 15-20 mín.
  6. Kryddið og bætið osti út í.