Skonsur - vinsælar á sunnudagsmorgnum með hlynsírópi

Hráefni:

  • 5 dl hveiti (2½ heilhveiti eða spelti)
  • 1 msk púðursykur
  • 3 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 4-5 dl mjólk
  • 2 stk egg
  • 2 msk matarolía

Aðferð:

  1. Mælið og blandið þurrefnunum saman í skál.
  2. Bætið mjólk og matarolíu út í.
  3. Brjótið eggin í bolla eða litla skál og hrærið saman við ásamt mjólkinni.
  4. Hitið pönnukökupönnu á miðstraum í um það bil 2 mínútur. Ef til vill þarf að bera á hana matarolíu, eða smjörlíki með eldhúspappír eða með fitudúsu. Það gerið þið áður en pannan er hituð.
  5. Setjið deigið með stórri skeið eða ausu á pönnuna.
  6. Snúið skonsunum við þegar yfirborðið fer að þorna, með pönnukökuspaða.
Skonsurnar eru bestar nýbakaðar.