Plokkfiskur (úr Gott og gagnlegt 2)
Hráefni:
- 350 g soðinn fiskur (ýsa eða þorskur)
- 350 g soðnar kartöflur
- 30 g smjör
- ½ meðalstór laukur
- 30 g hveiti
- 4 dl mjólk
- ¼ tsk salt
- örl. pipar
- ½ soðteningur, fisk- eða hænsnakraftur
Aðferð:
- Saxið laukinn smátt.
Roð- og beinhreinsið soðinn fiskinn.
- Skerið soðnar kartöflurnar í bita.
- Bræðið smjörið í potti við meðalhita.
- Setjið laukinn í pottinn og mýkið hann í smjörinu. Hann má ekki brúnast.
- Bætið hveitinu út í og hrærið þangað til blandan þykknar.
- Haldið áfram að hræra og bætið mjólkinni smátt og smátt út í þangað til búið er að nota alla mjólkina.
- Látið suðuna koma upp og kryddið með teningi, salti og pipar.
Þegar sósan er tilbúin bætið þá soðnum fiski, ýsu eða þorski út í ásamt kartöflunum og látið suðuna koma upp.
Berið fram með rúgbrauði.