Pítsusnúðar (úr Gott og gagnlegt 2)

Hráefni:

  • 1 dl mjólk
  • 1 dl heitt vatn
  • 3 tsk þurrger
  • 1 tsk sykur
  • ½ tsk salt
  • 1 egg
  • 3 msk matarolía
  • 6–6½ dl hveiti + hveiti til að hnoða upp í

    Fylling

  • 1–1½ dl pitsusósa
  • 50 g pepperóní, má sleppa
  • nokkrar sneiðar af skinku, má sleppa
  • 1 tsk pitsukrydd
  • 2 dl rifinn ostur

Aðferð:

  1. Blandið saman heitu vatni og mjólk í skál.
  2. Mælið gerið og stráið því í skálina.
  3. Setjið sykur, salt, egg og matarolíu út í skálina.
  4. Mælið hveitið og blandið því saman við. Hrærið vel þannig að deigið verði seigt.
  5. Látið deigið lyfta sér á volgum stað ef tími er til, gott er að það aukist um helming.
  6. Takið til efnið í fyllinguna. Takið til ofnplötu og pappír.
  7. Takið deigið úr skálinni,hnoðið það lítillega með hveiti og skiptið því í þrennt. Hnoðið það þangað til að deigið verður sprungulaust og festist ekki við borð eða hendur.
  8. Fletjið deigið út í aflanga lengju, u.þ.b. 15 x 20 cm stóra.
  9. Smyrjið deigið með pitsusósu. Stráið pitsukryddi, saxaðri skinku, söxuðu pepperóní og osti þar yfir.
  10. Rúllið deiginu upp frá lengri hliðinni og skerið það niður í 2–3 sm bita.
  11. Raðið snúðunum á bökunnarplötu með góðu millibili. Sárið á að snúa upp. Þrýstið létt með lófanum á hvern snúð. Nú getið þið valið um að láta snúðana lyftast á plötunni í 15 mín. og baka þá síðan í 12–15 mín í 200°C heitum ofni eða setja þá strax í kaldan ofn, stilla ofninn á 200°C þá tekur baksturinn u.þ.b. 20 mín.