Marengsbotnar Lilju Baldvins
Hráefni:
- 6 stk eggjahvítur
- 1½ dl púðursykur
- 3 dl sykur
- 6 dl rice krispies
- 50-100 g súkkulaði (ef vill)
Aðferð:
- Þeytið eggjahvítur, púðursykur og sykur mjög vel eða þar til hvíturnar mynda stífa toppa.
- Blandið nú rice crispísinu varlega út í með sleikju.
- Teiknið tvo hringi á pappírsklædda plötu og skiptið deiginu inn í hringina. Einnig gott að baka botnana á tveimur plötum.
- Bakað við 150°C í u.þ.b. 60 mín.
- Botnarnir lagðir saman með þeyttum rjóma og uppáhalds ávöxtum.
Þessa tertu er mjög þægilegt að frysta saman setta og bera fram vel kalda með ný þeyttum rjóma, eða brjóta botnana í bita og setja í skál ásamt ávöxtum, muldum kókosbollum, hrískúlur og þeyttum rjóma.