Lummur (úr Gott og Gagnlegt 1 og 2)

Hráefni:

  • 1 dl heilhveiti
  • 1 dl haframjöl
  • ½ tsk lyftiduft
  • 1/8 tsk salt
  • 2 tsk púðursykur
  • 1 dl + 1 msk mjólk
  • 1 msk matarolía
  • ½ tsk vanilludropar
  • 1 egg
  • ½ dl rúsínur (má sleppa)

Aðferð:

  1. Mælið og blandið þurrefnunum saman í skál.
  2. Bætið mjólk og matarolíu út í.
  3. Brjótið eggið í bolla eða litla skál og hrærið öllu saman með sleif.
  4. Hitið pönnukökupönnu á miðstraum í um það bil 2 mínútur. Ef til vill þarf að bera á hana matarolíu með eldhúspappír. Það gerið þið áður en pannan er hituð. Á meðan finnið þið til disk undir lummurnar, pönnukökuspaða, gaffal og stóra skeið.
  5. Setjið deigið með skeið á pönnuna. Hæfilegt er að setja 2–3 lummur á í hvert skipti.
  6. Snúið lummunum við þegar yfirborðið fer að þorna.
    Notið pönnukökuspaða og gaffal. Úr þessari uppskrift fást 10–12 lummur.

Þið getið stækkað uppskriftina um helming ef það eru 4 eða fleiri sem þið eruð að baka fyrir.

Lummurnar eru bestar nýbakaðar með sultu eða sykri.