Kryddbrauð úr Mosó
Hráefni:
- 3 dl hveiti
- 1½ dl sykur
- 4½ dl haframjöl
- 2 tsk lyftiduft
- 1 tsk kardimommur
- 2 tsk negull
- 2 tsk kanill
- 1-2 bollar saxaðar döðlur
- 4½ dl mjólk
Aðferð:
- Stillið ofn á 180°C.
- Blandið öllum þurrefnunum saman í (hrærivélar) skál.
- Bætið mjólkinni og döðlunum út í og hrærið þangað til degið er orðið samfellt. Passið að hræra ekki of lengi.
- Látið í vel smurt og hveitistráð aflangt mót.
- Bakið í miðjum ofni við 180°C í u.þ.b. 45 mín.