Kryddbrauð frá Selfossi
Hráefni:
- 5 dl hveiti
- 5 dl púðursykursykur
- 5 dl haframjöl
- 1 msk matarsódi
- 2 msk kakó
- 1¾ tsk allrahanda
- 1 ¾ tsk kanill
- 1 ¾ tsk engifer
- 5 dl súrmjólk
Aðferð:
- Stillið ofn á 180°C.
- Blandið öllum þurrefnunum saman í (hrærivélar) skál.
- Bætið súmjólkinni út í og hrærið þangað til degið er orðið samfellt. Passið að hræra ekki of lengi.
- Látið í vel smurð og hveitistráð aflöng mót. Þetta er nokkuð stór uppskrift, sem betra er að skipta í tvö mót.
- Bakið í miðjum ofni við 180°C í u.þ.b. 45 mín.