Kókosjarðaberjaterta

Hráefni:

  • 4 stk eggjahvítur
  • 1 b sykur
  • 2 b kókosmjöl
  • 100 g súkkulaði (saxað)

Aðferð:

  1. Þeytið eggjahvítur og sykur mjög vel eða þar til hvíturnar mynda stífa toppa.
  2. Blandið nú kókosmjöli og súkkulaði varlega út í með sleikju.
  3. Teiknið tvo hringi á pappírsklædda plötu og skiptið deiginu inn í hringina.
  4. Bakað við 100°C-120°C í u.þ.b. 60 mín.
  5. Botnarnir lagðir saman með þeyttum rjóma og niðursoðnum eða ferskum jarðarberjum.

Þessa tertu er mjög þægilegt að frysta saman setta og bera fram vel kalda með ný þeyttum rjóma.