Kanilsúðar með þurrgeri

Hráefni:

  • 2 dl mjólk
  • 3½ tsk þurrger
  • ½ dl sykur
  • ½ dl matarolía
  • 1 stk egg
  • 1 tsk kardimommur
  • ½ dl hveitiklíð
  • 5-6 dl hveiti

    Innan í snúðana:

  • brætt smjör eða mjólk
  • og kanilsykur

Aðferð:

  1. Hitið mjólkina að 37°C. Leysið gerið upp í mjólkinni og bætið sykri, matarolíu, eggi, hveitklíði og kardimommum út í og hrærið saman.
  2. Bætið hveitinu út í eftir þörfum og hrærið vel í.
  3. Látið lyfta sér vel á hlýjum stað.
  4. Hnoðið á borði þar til sleppir hendi.
  5. Flatt út í aflanga köku sem er smurð með bræddu smjöri og stráið kanilsykrinum yfir eftir smekk hvers og eins.
  6. Vafið upp í lengju, skorið í fingur þykka snúða sem er raðað á bökunarplötu með góðu bili á milli.
  7. Látið lyfta sér vel á plötunni.
  8. Bakað við 200°C í u.þ.b. 10-12 mín.