Kanillengjur frá Vindáshlíð

Hráefni:

  • 600 g hveiti
  • 2 tsk matarsódi
  • 2 tsk kanill
  • 300 g sykur
  • 400 g smjörlíki
  • 1 stk egg
  • 2 tsk vanilludropar
  • 2 msk síróp

Aðferð:

  1. Venjulegt hnoðað deig.
  2. Rúllið út í þumalfingur þykka sívalninga , sem er þrýst niður á pappírsklædda bökunar plötu þannig að úr verði fremur þunnar lengjur.
    Hafið dálítið bil á milli lengjanna.
  3. Bakið í miðjum ofni við 200 °C í 5-7 mínútur eða þar til lengjurnar eru gegn bakaðar.
  4. Skerið lengjurnar þvert í u.þ.b. 2ja sentimetra bita um leið og platan er tekin út úr ofninum.