Jólaskinkuhorn (jólaboð 6.bekkjar 2008)

Hráefni:

  • 1 dl heitt vatn
  • 1 dl mjólk
  • 3½ tsk þurrger
  • 1 msk sykur
  • ¾ tsk salt
  • 1 msk hveitiklíð
  • 1 egg
  • 3½ dl hveiti
  • 50 g smjör

    Fylling:

  • Skinkumyrja eða rifinn ostur
  • skinkubitar
  • sinnep (ef vill)
  • saxaður laukur (ef vill)

Aðferð:

  1. Myljið saman í skál hveiti og smjör.
  2. Hitaðu aðra skál með heitu vatni. Þegar skálin er orðin heit, mælið þá í hana heitt vatn (eins heitt og kemur úr krananum), mjólk, þurrger, sykur, salt, hveitiklíð og egg og hrærið aðeins í með sleif.
  3. Hellið nú hveiti/smjörblöndunni saman við.
  4. Hrærðu vel í. Deigið á að vera þykkt og seigt. E.t.v. þarftu að nota meira hveiti.
  5. Ef tími er til er gott að láta deigið lyfta sér á hlýjum stað í 15-20 mín. Gott að nota tímann til að undirbúa fyllinguna.
  6. Næst læturðu deigið á borðið og hnoðar það þar til það sleppir hendi, e.t.v. þarftu að bæta meira hveiti í deigið.
  7. Þegar deigið er hætt að festast við borð og hendur skiptu því þá í tvennt, og flettu út tvær kringlóttar kökur og skiptu hvorri köku í 8 hluta.
  8. Nú læturðu fyllinguna á breiðari enda hornanna, passaðu að láta ekki of mikið á hvert horn, því þá þrýstist fyllingin út.
  9. Láttu hornin á bökunarplötu klædda bökunarpappír. Fallegt að pensla hornin með eggi og strá einhverjum fræjum ofan á.
  10. Láttu hornin lyfta sér í a.m.k. 10-15 mín. Bakað við 200°C í 10-15 mín.