Hnoðuð sírópsterta (gömul uppskrift frá Laugarvatni)
Hráefni:
- 1 kg hveiti
- 2 tsk matarsódi
- 1 tsk negull
- 1 tsk kanill
- 1 tsk allrahanda
- 400 g púðursykur
- 500 g smjör(líki)
- 3 msk síróp
- 4 egg
Krem:
- 300 g smjör
- 450 g flórsykur
- 1-2 eggjarauður
- 2 tsk vanilludropar
- Sulta
Aðferð:
- Blandið öllum þurrefnum saman á borð og myljið kalt smjörið saman við.
- Búið til holu í miðjuna og vætið í með eggjum og sírópi og hnoðið öllu vel saman.
- Skiptið deiginu í fjóra hluta, hveiti stráið deigið og fletjið jafnt út á velsmurðar bökunarplötur.
- Bakið við 180 °C blástur í 13–15 mínútur eða þar til er kominn góður bökunarlitur.
- Losið strax af plötunni og látið á sykurstráðan pappír. Það þarf að snúa neðstu plötunni. Kælið vel áður en kremið er sett á.
- Smyrjið kreminu jafnt á og leggið næsta ofaná og síðan hvert lagið af öðru. Sumum finnst gott að smyrja sultu á eitt lagið, annað hvort yfir smjörkremið eða að hafa aðeins sultu á einu laginu. Þetta fer auðvitað eftir smekk hvers og eins.
Krem:
- Hrærið lint smjörið og flórsykurinn vel.
- Vætið í með eggjarauðunum og vanilludropunum og hrærið vel.
Mikilvægt að leyfa kökunni að bíða og brjóta sig áður en hún er skorin í stykki.
Mjög gott að láta vel undið rakt stykki yfir kökuna og síðan að geyma hana í vel lokuðum plastpoka yfir nótt.