Hnoðuð brún terta frá Heiðveigu

Hráefni:

  • 1 kg hveiti
  • 500 g sykur
  • 5 tsk matarsódi
  • 3 tsk lyftiduft
  • 1tsk negull
  • 5 tsk kanill
  • 900 g smjör(líki)
  • 500 g sýróp
  • 4 egg

    Krem:

  • 450 g smjör
  • 600 g flórsykur
  • 2 eggjarauður
  • 2 tsk vanilludropar
  • Sulta

Aðferð:

  1. Blandið öllum þurrefnum saman á borð og myljið kalt smjörið saman við.
  2. Búið til holu í miðjuna og vætið í með eggjunum og sýrópinu og hnoðið öllu vel saman.
  3. Skiptið deiginu í 4 hluta, hveiti stráið deigið og fletjið jafnt út á velsmurðar bökunarplötur.
  4. Bakið við 180 °C blástur þangað til er kominn góður bökunarlitur.
  5. Losið strax af plötunni og látið á sykurstráðan pappír. Það þarf að snúa neðstu plötunni. Kælið vel áður en kremið er sett á.
  6. Smyrjið kreminu jafnt á og leggið næsta ofaná og síðan hvert lagið af öðru. Sumum finnst gott að smyrja sultu á eitt lagið, annað hvort yfir smjörkremið eða að hafa aðeins sultu á einu laginu. Þetta fer auðvitað eftir smekk hvers og eins.

    Krem:

  7. Hrærið lint smjörið og flórsykurinn vel.
  8. Vætið í með eggjarauðunum og vanilludropunum og hrærið vel.

Mikilvægt að leyfa kökunni að bíða og brjóta sig áður en hún er skorin í stykki.

Mjög gott að láta vel undið rakt stykki yfir kökuna og síðan að geyma hana í vel lokuðum plastpoka yfir nótt.