Hjónabandssæla Möggu Sigursteins

Hráefni:

  • 2 bollar haframjöl
  • 2 bollar hveiti
  • 1 bolli sykur
  • 1 tsk matarsódi
  • 1 bolli brætt smjörlíki
  • sulta

Aðferð:

  1. Þurrefnin hrærð saman.
  2. Sjörlíkið brætt, t.d. við vægan hita í örbylgjuofni og því er síðan blandað útí þurrefnin.
  3. 2/3 af deiginu er þrýst niður í smurt form. Sulta af hvaða tegund sem er smurð yfir og síðan er restinni af deiginu stráð yfir.
  4. Bakað við 175°C í u.þ.b. 15 mín.