Hjónabandssæla Huldu Kristjáns

Hráefni:

  • 11 dl haframjöl
  • 6 ½ dl hveiti
  • 3 dl sykur
  • 2½ tsk matarsódi
  • 400 g smjörlíki
  • 2 msk vanilludropar
  • sveskjusulta

Aðferð:

  1. Þurrefnin hrærð saman.
  2. Sjörlíkið brætt, t.d. við vægan hita í örbylgjuofni og því er síðan blandað útí þurrefnin ásamt vanilludropunum.
  3. 2/3 af deiginu er þrýst niður í smurt form. Sveskjusulta er smurð yfir og síðan er restinni af deiginu stráð yfir.
  4. Bakað við 200°C í u.þ.b. 10-15 mín.
Mjög góð volg með þeyttum rjóma.