Gulrótabollur (úr Gott og gagnlegt)
Hráefni:
- 1 ½ dl heitt vatn
- ½ dl súrmjólk
- ½ dl mjólk
- 2 ½ tsk þurrger
- ½ tsk salt
- 1 tsk hunang
- 3 msk matarolía
- 1 dl rifnar gulrætur (1–1 1/2 gulrót eftir stærð)
- 2 msk saxaðar valhnetur (má sleppa)
- 1 dl hveitiklíð
- 5–6 dl hveiti
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 50 °C.
- Hreinsið, skolið og rífið gulræturnar á rifjárni.
- Saxið valhneturnar ef þær eru notaðar.
- Mælið vatn, súrmjólk og mjólk í skál.
- Hrærið þurrgeri, salti, hunangi og matarolíu saman við.
- Blandið öllu öðru út í skálina, en haldið eftir 1 dl af hveiti.
- Hrærið og sláið deigið. Bætið hveiti saman við og sláið deigið áfram þangað til það er laust frá skál og sleif.
- Hnoðið saman í skálinni og látið lyfta sér, ef tími er til.
- Hnoðið deigið á borðinu og skiptið því í þrjá hluta.
- Rúllið út í lengjur og skiptið hverri lengju í 6 jafn stóra bita, mótið bollur.
- Raðið bollunum á ofnplötu og penslið með eggjablöndu.
- Bakið í 5–8 mínútur, hækkið þá hitann í 200 °C og
bakið í um það bil 15–18 mínútur.