Gestaréttur (úr Gott og gagnlegt)

Hráefni:

  • 3 sneiðar gróft brauð
  • 3 sneiðar skinka
  • ½ paprika
  • biti af blaðlauk
  • ½ dl ferskjur
  • 1/3 dós skinkumyrja
  • 3/4 dl mjólk
  • 1 egg
  • 2–3 msk ferskjusafi
  • 1/8 tsk salt
  • 1 ½ dl rifinn ostur
  • matarolía til að pensla mótið

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið hann á 200°C.
  2. Smyrjið eldfast mót með matarolíu.
  3. Skerið skorpuna af brauðsneiðunum, skerið þær í litla teninga og setjið þá í eldfasta mótið.
  4. Skerið skinkuna í bita. Hreinsið papriku og blaðlauk og brytjið smátt.
  5. Sigtið safann frá ferskjunum og skerið þær smátt.
  6. Setjið skinkuna, grænmetið og ferskjurnar í mótið.
  7. Setjið skinkumyrjuna í skál og hrærið, bætið mjólkinni smátt og smátt saman við.
  8. Bætið eggi, salti og ferskjusafa saman við myrjublönduna og hrærið.
  9. Hellið blöndunni yfir í eldfasta mótið.
  10. Stráið rifnum osti yfir.
  11. Bakið í 15–20 mínútur.