Frábært kjúklingasalat
Hráefni:
- 4 kjúklingabringur
- 1-2 dl Thai sweet chili sósa
- 1 poki kínverskar núðlur með kjúklingabragði
- 1 poki uppáhalds salatblanda
- tómatar- litlir (sherry tómatar) eða venjulegir
- 1 mangó eða ferskjur
- 1 lítill rauðlaukur
- 3 msk möndluflögur, eftir smekk
- 1-2 msk sesamfræ, eftir smekk
Sósan:
- 1 bolli olía
- ½ bolli balsamic edik
- 4 msk sykur
- 4 msk sojasósa
Aðferð:
- Kjúklingabringurnar eru skornar í ræmur og snöggsteiktar í olíu. Thai sweet chili sósu er hellt yfir og látið malla í smá stund.
- Brjótið núðlurnar í smáa bita og ristið þær á þurru pönnu, deyfið kryddinu yfir núðlurnar ef þið viljið.
- Ristið sesamfræ og möndluflögur á þurri pönnu.
- Allt sem á að fara í sósuna er sett í lítinn pott og soðið saman í ca. 1 mínútu. Kælt, hrært í annað slagið meðan sósan kólanar, annars skilur sósan sig.
- Skerið rauðlauk og mangó (ferskjur).
- Salatinu er nú raðað á flatt fat eða skál í þessari röð:
- grænmeti
- núðlur, möndlur, sesamfræ
- sósa
- kjúklingaræmur
Borðað með hvítlauksbrauði. Gott er að geyma eitthvað af sósunni og bera fram með réttinum, sósan er líka góð með brauðinu.